Háaberg er alhliða byggingarfyrirtæki
Háaberg er alhliða byggingarfyrirtæki í eigu tveggja húsasmíðameistara sem búa yfir mikilli reynslu í nýbyggingu húsa og viðhaldi þeirra. Háaberg tekur að sér stærri sem smærri verk og á meðal annars flekamót, byggingarkrana, uppsláttarefni og vinnupalla.
Við höfum mikla reynslu í viðhaldi, nýsmíði og breytingum húsa, álklæðningum, gluggaísetningum, smíði sólpalla og sumarhúsa svo fátt eitt sé nefnt. Við leggjum mikið upp úr vönduðum vinnubrögðum, persónulegu og góðu samstarfi.
Hafðu samband og við gerum tilboð.
Árni Björn Valdimarsson sími 898 5103
Garðar Ólafsson sími 899 4263